Veislusalur

 

Í salnum eru hringborð og komast tíu manns fyrir á hverju.  Borðin eru 10 talsins og tekur salurinn því 100 manns í sæti.  Hægt er að raða þeim að vild og hafa færri en 10 borð í salnum ef það hentar betur.  Svið er á staðnum með hljóðnema, hátalarakerfi og mixer.

 

ATHUGIÐ!  Skarfurinn er EKKI í útleigu á sumrin, frá 5. maí til 20. okt.

 

Stórt barborð er í salnum með góðri vinnuaðstöðu.  Fyrir aftan barborðið er móttökueldhús með ísskáp, uppþvottavél og helstu áhöldum.  Kaffivél til uppáhellingar og kaffibrúsar með pumpu.  Auk þess 10 smekklegir kaffibrúsar til að hafa á hringborðunum.  Borðbúnaður fylgir fyrir 100 manns.  Inn af salnum er aukaherbergi sem nýtist sem fatahengi, frálagsherbergi eða vinnuaðstaða. Rúmgóð salernisaðstaða með aðgengi fyrir fatlaða.

Byggingin sjálf
Aðalhönnuður hússins er Þorsteinn Helgason, arkitekt FAÍ hjá ASK Arkitektum. Þorsteinn hafði íslenska náttúru að leiðarljósi við hönnun hússins. Húsið er klætt að utan með skipstimbri og gluggum sem minna á kýraugu. Austurhlið hússins rís upp líkt og stefni á skipi, gólfefnið er úr gabbrósteinum frá Austfjörðum og barborðin eru úr birkiviði. Mikill gluggaflötur er á salnum og því gott útsýni til Viðeyjar og yfir sundin blá.

Hér má sjá grunnteikningu af salnum.

Nánari upplýsingar fást í síma 894-1718 og með því að senda póst á hafsteinn@netvisir.is