Umsagnir:
“Ég tók Skarfann á leigu fyrir 80 manna veislu sem tókst frábærlega. Salurinn skapar mikla nánd í passlega stóru
rými. Góður hljómur er í salnum, fyrir utan að hann er snyrtilegur og smart. Gott aðgengi er að salnum, allt á
einni hæð, næg bílastæði og stórbrotið útsýni. Mínir gestir voru hæstánægðir.”
- Þórdís Unndórsdóttir – feb. ‘09
“Við skemmtum okkur konunglega í salnum á jólahlaðborði Skjás 1. Þökk sé vinalegu starfsfólki Skarfsins,
frábæru húsnæði og skemmtilegu umhverfi.”
- Dögg Mósesdóttir, Skjár 1 – des. ‘09
“Við héldum 100 manna árshátíð í salnum sem passaði fullkomlega undir viðburðinn. Salurinn hinn glæsilegasti
og útsýnið stórfenglegt. Þar sem salurinn er að mestu leiti eitt rými þá skapaðist afar skemmtileg stemmning.
Skarfurinn kemur skemmtilega á óvart."
- Lárus Axel Sigurjónsson, Johan Rönning hf. - des. '09
"Skarfurinn er huggulegur, hlýlegur og snyrtilegur. Starfsfólkið er þægilegt og hentaði aðstaðan vel fyrir SP vöru-
kynninguna okkar í haust. Við munum eflaust nýta okkur þessa frábæru aðstöðu aftur."
- Sigríður Sigmarsdóttir, Halldór Jónsson ehf. - jan '10