Glæsilegur veislusalur.


Skarfurinn
 er til leigu fyrir fermingar, árshátíðir og aðra mannfagnaði. Salurinn er í nýju og glæsilegu 240 fm húsnæði að Skarfagörðum 8, 104 Reykjavík. Húsið skiptist í 170 fm veislusal, kaffieldhús, bar og salerni. Salurinn rúmar 100 manns í sitjandi borðhaldi og 150 manns í standandi boði.

ATHUGIÐ!  Skarfurinn verður ekki í útleigu í sumar, eða frá 5. maí til 15. okt.


Vetur:    Skarfurinn er leigður út fyrir fundi, veislur og mannfagnaði yfir vetrartímann, eða á tímabilinu frá 15. okt. til 5. maí.
Sumar:  Á sumrin gegnir Skarfurinn hlutverki þjónustumiðstöðvar fyrir farþega skemmtiferðaskipa sem leggja við 
               Skarfabakka, þ.e. mánuðina júní, júlí, ágúst og september.

Stórt 800 m2 bílastæði er fyrir framan húsið og komast því hátt í 100 einkabílar fyrir á planinu. Að sama skapi er gott aðgengi fyrir rútur að leggja við inngang hússins. Húsið er út af fyrir sig og fjarri íbúðabyggð. Frábært útsýni er til norðurs, suðurs og vesturs.

Salurinn hentar fyrir:
   fermingar - mótttökur - brúðkaup - hanastélsboð - erfidrykkjur
   vörukynningar - fyrirtækjafundi - blaðamannafundi - hópefli

Nánari upplýsingar fást í síma 894-1718 og með tölvupósti á hafsteinn@ita.is.
Fyrirspurnum er svarað í gegnum síma en aðeins er tekið við skriflegum bókunum gegnum tölvupóst.